Home » Sports » ÍA - KA 2-0 (16. júní 1989)

ÍA - KA 2-0 (16. júní 1989)

Written By Ágúst Stefánsson on Friday, Mar 20, 2020 | 09:25 AM

 
KA mátti þola fyrsta tap sitt sumarið 1989 er liðið sótti Skagamenn heim þann 16. júní. KA liðið átti í raun litla möguleika á Akranesi. Skagamönnum tókst þó ekki að skora fyrr en skömmu fyrir leikslok og var það helst vegna góðrar markvörslu Hauks Bragasonar í marki KA. Varamaðurinn Haraldur Hinriksson náði að skora eftir hornspyrnu á 79. mínútu og nafni hans Haraldur Ingólfsson tryggði síðan sigur heimamanna þegar hann sendi boltann í KA markið, beint úr aukaspyrnu af vítateigshorni, 2-0.