Home » Sports » Breiðablik - KA 1-3 (1. maí 2017)

Breiðablik - KA 1-3 (1. maí 2017)

Written By Ágúst Stefánsson on Monday, May 08, 2017 | 08:20 PM

 
KA mætti Breiðablik í fyrsta leik sínum í efstu deild síðan sumarið 2004. Fyrirfram var búist við hörkuleik þó að heimamenn í Kópavogi voru taldir líklegri. En KA menn komu gríðarlega vel stemmdir til leiks og náðu forystunni á 17. mínútu með marki Darko Bulatovic. Áfram héldu KA menn að leika betur og Elfar Árni Aðalsteinsson tvöfaldaði forskotið á 43. mínútu og hálfleikstölur 0-2. Ásgeir Sigurgeirsson kláraði leikinn svo endanlega með laglegu marki á 67. mínútu. Andri Rafn Yeoman lagaði stöðuna fyrir heimamenn á 70. mínútu en nær komust þeir ekki og KA vann sannfærandi 1-3 sigur. Myndefni fengið úr fréttatíma RÚV.